Eg var ad kikja a sidustu blogg og hef komist ad thvi ad upplysingaflaedid hefur verid heldur litid undanfarid! Svo margt hefur gerst ad thessi faersla verdur long...en vonandi ekki leidinleg.
Fyrir thad fyrsta fekk eg malariu um daginn, en hun var vaeg, thokk se Trudy sem attadi sig a thvi heldur snemma og for med mig a skituga litla heilsugaeslustod i thorpinu okkar. Ef eg var ekki med malariu thegar eg for thangad tha hef eg a.m.k. fengid malariu thar...
Eg var heima i tvo leidinlega daga og las ofsalega thykka bok a medan. Var afskaplega stolt af thvi ad lesa svona hratt. Merkilegt nokk ad eg thurfti ad fara til Afriku til ad byrja ad lesa almennilega aftur. Um leid og eg klara eina bok herna tha byrja eg a theirri naestu.
I tharsidustu viku for eg til thorps i nordurhluta Uganda, sem heitir Rackoko. Fyrst thegar eg kom thangad hugsadi eg (og allt staffid sem for): "Ji thurfum vid ad vera her i viku, hvenaer forum vid til baka?" En svo spiladist bara vel ur vikunni og nu get eg varla bedid eftir ad fara aftur...adallega til ad hitta nyjan vin sem eg eignadist...hann heitir Ojok Francis.
Og allar vinkonur minar sem thyrstir i sludur...setjist bara rolegar aftur i saetid ykkar, hann er 11 ara og er i grunnskola ABC i Rackoko.
Ojok Francis er serlega adladandi og brosmildur drengur, sem kom mer ekkert serstaklega a ovart fyrr en eg heyrdi soguna hans.
I januar sidastlidinn, thegar Francis var i gardinum sinum ad tina graenmeti med fjolskyldunni, braust ut mikill skogareldur sem umkringdi gardinn theirra. Thad virtist engin leid til ad sleppa...
Skyndilega henti Francis graenmetinu a jordina og byrjadi ad hlaupa gegnum eldinn. Hann hljop og hljop thar til hann kom ad svaedi sem virtist oruggt. Hann beid thar i um klukkustund thar til eldurinn hvarf ad mestu og lagdi svo leid sina aftur i gard fjolskyldunnar, en adeins til ad finna alla fjolskylduna (thau voru 8 talsins, med honum) brennda til dauda.
Hann langadi ekki til ad lifa lengur og hugsadi mer ser ad hann myndi leita eldinn uppi og enda lif sitt.
En (eins og hann lysti thvi) fannst honum eitthvad aftra ser, einhver rodd innra med honum sem hann likti vid Gud, sagdi: "Thad er astaeda fyrir thvi ad thu ert a lifi, fardu til baka i thorpid og segdu ollum hvad gerdist". Hann gerdi thad. Miskunnsamur samverji for med Francis a spitala i Gulu heradi thar sem var hlud ad honum. Stuttu sidar foru opinberir starfsmenn ad fa ahuga a mali Francis og komu honum inn a heimavist ABC skolans i Rackoko, thar sem hann yrdi langt i burtu fra thessum slaemu minningum. Enn sem komid er hefur Francis engan studningsadila...en ekki mikid lengur ef eg fae einhverju radid.
Francis byrjadi i 3. bekk (primary 3) og gengur vel, einkum midad vid allt sem a undan hefur gengid.
Hann langar til ad verda kennari i framtidinni (enda hafa kennararnir komid honum i foreldra stad) og svo langar hann til ad eignast 3 born, eina stelpu og tvo straka. Hann lagdi mikla aherslu a ad hann aetladi ad laera af mikilli samviskusemi til thess ad "verda einhver" i framtidinni. Eg hlo og sagdi honum ad hann vaeri nu thegar einhver, og ekki bara einhver, heldur einhver mjog serstakur...

Annars er brjalad ad gera, og ser ekkert fyrir endan a thvi. Eg er ad vinna af mer rassgatid og med heilan verkefnalista. Thetta var thad sem eg vildi, er mjog anaegd yfir thvi ad vera ekki bara sjalfbodalidi ad nafninu til...
Simanum minum var stolid i gaer...svo ekki hringja i mig!
I sidustu viku for eg sudur til svaedis sem heitir Rakai med Florence...thad var agaett, en frekar threytandi ferdalag thar sem eg er buin ad vera a stodugum theytingi undanfarid. Var ordin eitthvad slopp thegar eg kom heim i gaer en eg tok nokkrar malariutoflur og leid mun betur. Baud bilstjoranum i te og syndi honum myndir fra Islandi.
Ljosmyndakeppnin er komin a fullt swing, vid erum buin ad stofna ljosmyndaklubb og eg er buin ad dreifa einnota myndavelum a lidid. Kaerar thakkir, thid sem styrktud verkefnid!!! Thvi midur vantar enn pening, mig vantar um 50.000 kall til ad koma ut a slettu. Eg minni thvi aftur a, ef thid viljid styrkja...ad leggja inna reikninginn sem eg skrifadi i sidasta bloggi.
Nu vil eg einnig nyta taekifaerid til ad oska nyfaeddri leikkonu i vinahopnum til hamingju...hun heitir Nanna og er Gunnarsdottir...eda "Nanna Gunn", saella minninga fra Reykjum. Leiklistin byrjadi greinilega snemma ad faedast i henni...
Skal fyrir ther Berta min...sem ert a leid til storborgarinnar ad verda fraeg, litla saklausa blaeygda islenska stelpan ur 101 Reykjavik, sem eitt sinn gekk bara i baettum hippabuxum.
Kaer kvedja fra heitu Afriku (I Rackoko var svo heitt ad vid vinkonurnar thurftum ad sofa berrassadar med blaut handklaedi yfir okkur...Olivia bleytti meira ad segja rumid sitt...ekki i theirri merkingu samt...),
Beta kokoshneta.